Það er okkur ánægja að tilkynna að Padda ehf. hefur fengið alþjóðlega aðild (Observer Membership) að British Pest Control Association (BPCA), breskum fagsamtökum meindýraeyðingarfyrirtækja.
Aðildin er liður í áframhaldandi þróun fyrirtækisins og áherslu okkar á fagleg vinnubrögð, gæði og öruggar meindýravarnir.
Með aðildinni fáum við aðgang að alþjóðlegri fagþekkingu, fræðslu og verklagsleiðbeiningum sem munu nýtast okkur við að þróa þjónustu okkar enn frekar.
Padda ehf. – Fagmennska í meindýravörnum.

