Um bókun pantana

    Pöntun/Fyrirspurn

    Pöntunum verður svarað eins fljótt og kostur gefst.

    Undirbúningur fyrir komu

    Ef verkefni fela í sér að koma efni fyrir til eyðingar innandyra fær verkkaupi sendar til sín upplýsingar um hvað skal huga að fyrir komu meindýraeyðis.

    Við komu

    Blöndun á efni fer fram við komu og reynt verður eftir fremsta megni að ganga snyrtilega um.

    Eftir komu

    Flestum verkefnum innandyra fylgir skýrslugerð sem verkkaupi fær senda með tölvupósti að verki loknu sé þess óskað. Eftir að 3 mánuðir eru liðnir frá verkslokum óskum við eftir því að verkkaupi sendi póst svo hægt sé að sinna eftirfylgni með verkefnum.

    Um skráningu á póstlista

    Viðskiptamenn Pöddu ehf. sem skráðir eru á póstlista fá sendan tölvupóst á uppgefið netfang, um hvenær sé best að sinna tilteknum verkefnum.