Padda ehf. fær alþjóðlega aðild að BPCA

Það er okkur ánægja að tilkynna að Padda ehf. hefur fengið alþjóðlega aðild (Observer Membership) að British Pest Control Association (BPCA), breskum fag­samtökum meindýraeyðingarfyrirtækja.

Aðildin er liður í áframhaldandi þróun fyrirtækisins og áherslu okkar á fagleg vinnubrögð, gæði og öruggar meindýravarnir.

Með aðildinni fáum við aðgang að alþjóðlegri fagþekkingu, fræðslu og verklagsleiðbeiningum sem munu nýtast okkur við að þróa þjónustu okkar enn frekar.

Padda ehf. – Fagmennska í meindýravörnum.

Scroll to Top