PÖDDUR OG MEINDÝR
Þekkir þú meindýrið?
Hér finnur þú yfirlit yfir algengar pöddur og önnur meindýr sem geta komið upp í íslensku húsnæði. Skoðaðu helstu einkenni þeirra, hvar þeirra verður helst vart og hvenær ástæða er til að fá faglega ráðgjöf.
Ekki allt sem skríður er meindýr
Margar pöddur sem finnast innandyra eru tilfallandi gestir og valda hvorki tjóni né hættu. Rétt greining skiptir þó máli, því útlík dýr geta krafist ólíkra viðbragða. Góð mynd ásamt upplýsingum um stærð, fjölda og fundarstað hjálpar okkur að meta næstu skref.
Nagdýr
Nagdýr leita inn í húsnæði í leit að fæðu, vatni og skjóli.
Merki um þau geta meðal annars verið skítur, nartför, hljóð innan veggja eða skemmdir á umbúðum og byggingarefnum.

Mýs
Húsamýs og hagamýs geta komist inn um mjög þröng op og komið sér fyrir í veggjum, geymslum og öðrum lítt trufluðum rýmum. Mikilvægt er að draga úr fæðuframboði, finna inngönguleiðir og velja gildrur eða annan búnað sem hentar aðstæðum.

Rottur
Rottur geta haldið sig við fráveitu, sorp, lagnaleiðir og skjólgóð svæði við byggingar. Ummerki þeirra þarf að taka alvarlega og bregðast hratt við með greiningu, öruggri staðsetningu búnaðar og lokun mögulegra inngönguleiða.
Pöddur í híbýlum

Ediksgerla
(Drosophila melanogaster)
Ediksgerla, oft kölluð ávaxta- eða bananafluga, er örsmá fluga sem sækir í þroskaða ávexti og sykraða eða gerjaða vökva. Hún fjölgar sér hratt við stofuhita og því þarf fyrst að finna uppsprettuna, fjarlægja hana og þrífa vel í kringum rusl, niðurföll og matvæli.

Veggjatítla
(Anobium punctatum)
Lirfur veggjatítlu lifa inni í tré og geta skilið eftir lítil kringlótt göt og fínt viðarduft. Gömul göt segja þó ekki alltaf til um virka sýkingu og því þarf að meta raka, umfang og ástand viðar áður en gripið er til aðgerða.

Veggjalús
(Cimex lectularius)
Lirfur veggjatítlu lifa inni í tré og geta skilið eftir lítil kringlótt göt og fínt viðarduft. Gömul göt segja þó ekki alltaf til um virka sýkingu og því þarf að meta raka, umfang og ástand viðar áður en gripið er til aðgerða.

Silfurskotta
(Lepisma saccharinum)
Silfurskotta er vængjalaust, silfurgrátt skordýr sem sækir í dimm, hlý og rök rými, til dæmis baðherbergi, eldhús og kjallara. Mikill fjöldi getur bent til rakavandamála og því skiptir máli að bæta loftræstingu, þurrka upp og loka fylgsnum.

Húsþjófur
(Ptinus tectus)
Húsþjófur er lítil brún bjalla sem lifir innandyra og getur nýtt fjölbreytt þurr lífræn efni sér til viðurværis. Hann getur leynst í geymslum, innan veggja og í lítt trufluðum rýmum og því þarf oft að finna og fjarlægja uppsprettuna til að ná stjórn á vandanum.

Húskakkalakki
(Blattella germanica)
Húskakkalakki er gulbrúnn og flatvaxinn með tvær dökkar rendur á hálsskildi. Hann heldur sig helst á hlýjum og rökum stöðum nálægt mat og vatni, fjölgar sér hratt og getur dreifst milli rýma ef ekki er brugðist tímanlega við.

Hamgæra
(Reesa vespulae)
Hamgæra er lítil dökk bjalla, en það eru lirfurnar sem valda helst tjóni. Þær geta nærst á dauðum skordýrum, ull, fjöðrum, skinnavöru, þurrum matvælum og öðrum lífrænum efnum og því þarf að leita vandlega að uppsprettunni.

Feldgæra
(Attagenus smirnovi)
Feldgæra er smávaxin bjalla sem finnst innandyra í upphituðum húsum. Lirfurnar geta lagst á ull, fiður, skinn, dauð skordýr, fræ og kornmat og valdið skemmdum ef þær fá að fjölga sér óáreittar.

Hænsnafló eða starafló
(Ceratophyllus gallinae)
Starafló lifir fyrst og fremst í hreiðrum fugla, meðal annars stara og maríuerlu. Þegar fuglar yfirgefa hreiðrið geta flær leitað inn í hús og bitið fólk eða dýr, en þær ná yfirleitt ekki að fjölga sér í venjulegu íbúðarhúsnæði.

Skápa- og parketlýs
Skápa- og parketlýs eru örsmá skordýr sem halda gjarnan til þar sem raki, mygla eða lífrænar leifar eru til staðar. Þær eru fyrst og fremst vísbending um aðstæður sem þarf að laga, svo sem raka eða lélega loftun, fremur en stórtjón af þeirra völdum.

Matvælaskaðvaldar
Hnetuglæða, hveitibjalla og fleiri smádýr geta borist með þurrvöru og fjölgað sér í matvælageymslum. Farga þarf menguðum vörum, ryksuga og þrífa skápa vandlega og geyma ný matvæli í vel lokuðum ílátum.
Önnur meindýr og óþægindi

Geitungar
Geitungar eru gagnlegir úti í náttúrunni en bú við innganga, leiksvæði eða önnur fjölfarin svæði getur skapað hættu. Ekki er ráðlegt að eiga við virkt bú án viðeigandi búnaðar og þekkingar, sérstaklega ef ofnæmi er til staðar.

Stari og fuglahreiður
Stari getur komið sér fyrir undir þakskeggi og í öðrum opum á byggingum. Hreiðurefni geta borið með sér flær og önnur óhreinindi, en tryggja þarf að hreiðrið sé yfirgefið og virða gildandi reglur áður en það er fjarlægt og inngönguleið lokað.
Ekki viss hvað þú hefur fundið?
Sendu okkur skýra mynd og segðu hvar dýrið fannst, hversu stórt það er og hvort þú hafir séð fleiri.
Við hjálpum þér að átta þig á vandanum og ráðleggjum um næstu skref.
